Heimskringla/Ynglinga saga/50
Útlit
Rögnvaldur hét son Ólafs er konungur var á Vestfold eftir föður sinn. Hann var kallaður heiðumhæri. Um hann orti Þjóðólfur hinn hvinverski:
- Það veit eg best
- und blám himni
- kenninafn,
- svo að konungr eigi,
- er Rögnvaldr
- reiðar stjóri,
- heiðumhæri
- of heitinn er,
- og mildgeðr
- markar drottinn.