Hjálp:Ítenging
Skönnun / Nýir textar ![]() |
Ljóslestur ![]() |
Villulestur ![]() |
Nýjar myndir ![]() |
Ítenging |
Hérna förum við yfir ítengingar og hvernig á að búa til rafbók á wikiheimild.
Ítenging[breyta]
Ítenging sýnir innihald síðna án þess að afrita textann. Hún er notuð til að sýna innihald blaðsíðna í aðalnafnrýminu.
Besti tíminn til að ítengja texta í aðalnafnrýmið er þegar allar síðunar eru staðfestar (merktar með grænu). Það getur þó líka hjálpað að sjá hvernig lokaútgáfan lítur út í aðalnafnrýminu. Þú þarft að vita á hvaða blaðsíðum hver kafli er.
Til þess að ítengja:
- Búðu til nýja síðu með sama titil og bókin sjálf
- Breyttu síðunni
- Ýttu á
, í breytingarstikunni, og sláðu inn "Síðuhaus" í leitina.
- Fylltu út eins marga reiti og þú getur um verkið.
- Bættu við ítengingar kóðanum (sjá hér fyrir neðan)
- Tilgreindu skráarnafnið og hvaða síður séu í þessum kafla (frá X yfir í Y)
- Vistaðu síðuna
Fjöldi síðna | Kóði |
---|---|
Ein | <pages index="filename" include=X header=1 /> |
Tvær eða fleiri | <pages index="filename" from=X to=X header=1 /> |
Við þetta birtist bæði textinn af blaðsíðunum og haus, sem gerir þér kleift að fara á milli kafla.
Ferlið hér fyrir ofan er endurtekið fyrir hvern kafla þangað til allir kaflarnir hafa verið ítengdir.
Kaflaskil á miðri síðu[breyta]
Í þeim tilfellum þar sem hafa verið kaflaskil á miðri blaðsíðu þarft þú að nota sérstakan kóða. Eins og fyrr þarft þú að vita á hvaða blaðsíðu kaflinn byrjaði og endaði, en í þessu tilfelli þarft þú einnig að vita heiti kaflans. Heiti kaflans þarf að vera það sama og er skilgreint á þeirri blaðsíðu kaflans þar sem kaflaskilin urðu á miðri blaðsíðu.
- Kafli byrjar á miðri síðu:
<pages index="skráarheiti.djvu" from=x to=y fromsection="kafli" />
- Kafli endar á miðri síðu:
<pages index="skráarheiti.djvu" from=x to=y tosection="kafli" />
Búa til rafbók[breyta]
Til þess að búa til rafbók, farðu á grunnsíðuna. Til dæmis er Æfisaga Jóns Ólafssonar Indíafara grunnsíða þeirrar bókar, en ekki undirsíðan Æfisaga Jóns Ólafssonar Indíafara/I. kapítuli.
Til vinstri eru tenglarnir "Sækja EPUB skrá" og "Sækja ODT-skrá". Veldu þann tengil sem hentar þér. Þegar þú smellir á annan hvorn tengilinn er rafbókin búin til og þá getur þú sótt hana.