Hvarf séra Odds frá Miklabæ
Útlit
eftir Einar Benediktsson
- Hleypir skeiði hörðu
- halur yfir ísa,
- glymja járn við jörðu,
- jakar í spori rísa.
- Hátt slær nösum hvæstum
- hestur í veðri geystu.
- Gjósta af hjalla hæstum
- hvín í faxi reistu.
- Hart er í hófi frostið;
- hélar andi á vör.
- Eins og auga brostið
- yfir mannsins för
- stjarna, stök í skýi,
- starir fram úr rofi.
- Vakir vök á dýi
- vel, þótt aðrir sofi.
- "Vötn" í klaka kropin
- kveða á aðra hlið,
- gil og gljúfur opin
- gapa hinni við.
- Bergmál brýzt og líður
- bröttum eftir fellum.
- Dunar dátt í svellum:
- Dæmdur maður ríður!
- — — —