Pontus rímur/9. ríma
Útlit
IX RÍMA
[breyta]Samhent, framrímað
- 1. Vekja tekur mig vísna spil;
- verkin merk eg birta vil;
- Hómerus, kom og hjálpa til,
- hér so verði á rímu skil.
- 2. Menendur, þéna mér nú brátt,
- so megi eg segja níunda hátt;
- Euripides, heyr og fjölga fátt,
- fljóði rjóðu gjörðú kátt.
- 3. Nú skal, jungfrú, níunda birt;
- nýtri býtist kvæði stirt;
- meyju teygi eg Viðrix virt;
- veri þér nú angri firrt.
- 4. Varman farm með vísna feng
- veiti eg sveitum, Óðins spreng,
- að flétta réttan stefja streng,
- stundum bundinn ljóða þveng.
- 5. Bjóða þjóðum skýran skal,
- skorðuð orð með stuðlað hjal;
- grunns er munns míns vísna val;
- virt mun stirt af Skáldu tal.
- 6. Vera hver mun hljóta hér
- halur að tali frjáls fyrir mér;
- hrósun kjósa sjálfir sér;
- það sannast manna orðtak er.
- 7. Læt eg bætat lýði þá
- lýti ónýt, sem finnast á;
- skýri eg dýrum fyrst í frá,
- er fella að vella dauðan ná.
- 8. Sjáum á, hver styrjöld stríð
- stóð með þjóðum nokkra hríð;
- kvik þeim þykja skunda skíð;
- skein hinn hreini máni um síð.
- 9. Heiðnum greið að skömmin skall;
- skaðinn að þeim bjó til fall;
- hátt um nátt að hornið gall;
- hjartað svart af reiði svall.
- 10. Síðan ríða óvart á
- öld í tjöldum heiðin lá;
- hlaut hún brautir Heljar gá;
- hrönn af mönnum deyddist þá.
- 11. Skunda undan hér og hvar,
- hræðslu æðslum bundið var;
- höggin döggva hauðrið þar;
- hlífir lífi ekki par.
- 12. Vargar margir vígið sjá,
- valurinn svalast blóði á,
- ylgur fylgir föllnum ná,
- flykkjast þykkvum ernir þá.
- 13. Hrafn að tafni skundar skjótt,
- skeiða veiðum gjörir að fljótt;
- birnir girnast greitt um nótt
- gráð með bráði slökkva ótt.
- 14. Glaðél vaða greitt til fals,
- gjörir hjörinn endir tals,
- gljúfur rjúfa sónar sals,
- safna jafnan köstum vals.
- 15. Þöktu nöktum virðum völl;
- veitir sveitin heiðnum föll;
- hræddi mædda grimmdar göll;
- gleðin réð þeim hverfa öll.
- 16. Daginn fagran fyrðar sjá
- fjöldi hölda dauður lá;
- klæðist af æði Códrus þá,
- kallar alla heiðna á.
- 17. Gól með sólu hornið hátt,
- hernum gjörir að fylkja brátt;
- síðan stríða af mestum mátt;
- móti spjótum stendur fátt.
- 18. Felldan héldu þriðjung þar;
- þjóðin móð á hestum var,
- beitir hneiti, skjöldu skar,
- skeiðar greiðar fram á mar.
- 19. Merkið sterkur milding tók,
- mörgum örg að hjörtun jók;
- Códrus hjó og skaftið skók,
- skein í mein, til Heljar ók.
- 20. Próilus sló í kappa krans,
- kveikir leik að nýju dans;
- frækinn sækir frændi hans;
- fjöldi hölda verður stanz.
- 21. Til að viljum víkja á verk,
- er vinna svinnir kristnu sterk;
- víða svíður sollinn Serk;
- sára báru heiðnir kverk.
- 22. Ótal spjóti Andri skaut,
- alla snjallur fylking braut;
- dauðans nauð hvör hreppa hlaut,
- hann er fann, sá missti skraut.
- 23. Guðfreyr keyrir hestinn hratt,
- hann vel kann að leika glatt;
- margur kargur í dauðann datt;
- dreyra seyra úr undum spratt.
- 24. Verkin sterk að Vilhjálm vann,
- veitir sveitum dauðann hann;
- beita hneiti kappinn kann;
- kallast valla frægri mann.
- 25. Vernarð ber á báðar hendur,
- í blóði rjóðar, tíðum kenndur;
- drengja mengi dapurt stendur;
- í dauðans nauð er margur sendur.
- 26. Hestinn bezta búinn með skraut
- barður varð að missa í þraut;
- ganga langa hríð hann hlaut,
- hneigir, sveigir, pílum skaut.
- 27. Áður náði Andri sjá
- örva bör var fæti á;
- hestinn bezta honum réð fá,
- hratt hann spratt í söðulinn þá.
- 28. Fram að rammir friðþjófs menn
- fara snarast allir senn;
- hvítar rýta tyrfings tenn,
- trú eg kljúfi margur þrenn.
- 29. Ormur formi frá að skreið,
- fer hann gjörva spjóta leið;
- mun að brunni gata greið,
- granir í bana sveita reið.
- 30. Fyrða hirð við fleina brak
- féll á velli aftur á bak;
- drengir fengu bana blak;
- bauð þeim dauðinn heimatak.
- 31. Tók ei klóka tunga áls
- trauð í nauðum seint til máls,
- dæmda flæmdi fyrir sinn háls
- för í snöru dauðans sjálfs.
- 32. Hlakka rakkar heyrðan gný,
- hildur gild að byrjast ný,
- drífur fífu skúr sem ský,
- skella, hrella landsins bý.
- 33. Vilhjálm þiljur Hrumnings hjó,
- hjörinn fjörinu keypti ró,
- sundrast und, en fleinninn fló,
- fjöðrin nöðru gegnum smó.
- 34. Gengur mengi Guðfreyr meður,
- gegnum þegna fylking veður,
- hræjum frægi fugla seður,
- fljótt af ótta kristna gleður.
- 35. Heiðnir seiða spjóta spjall,
- spjátrað gátu í dauðans hall;
- dreyra heyrðist fossa fall;
- í fjöllum gjölla ópið skall.
- 36. Skeiðar reiður, þrútna þel,
- þengil drengja, sem eg tel;
- kvikir dika kóngs í hel,
- kristnir lista börðust vel.
- 37. Ferðin gerði að fella í nauð,
- framan gram af hesti snauð;
- tiggja liggur röstin rauð
- reit með sveit af mönnum dauð.
- 38. Heiðnir reiða hlífar grönd,
- hilmir vilja missi önd,
- kvikir þykja, líf og lönd
- leiðir veiða sér í hönd.
- 39. Næsta stæst er fótum fár,
- fengið engin hafði sár;
- hundrað mundi hafa ár,
- hann var mann af elli grár.
- 40. Þetta frétti kóngsson kær,
- kemur hann skemmra þessu nær,
- snögg gaf högg á hendur tvær,
- heiðnum greiðan dauðann fær.
- 41. Pontus vont lið hart að hjó,
- hauðrið dauðum sáðist þó;
- hranna fannir í driftir dró,
- drákons hlákan vætti skó.
- 42. Fljótt er dróttin fleinum börð;
- feigum ei er grimmdin spörð;
- hníga vígs fyrir hringa Njörð
- hausalausir bolar á jörð.
- 43. Prúðum flúði Ponto frá,
- prís að vísu hreppti sá,
- stað kom að þar stillir lá;
- stóðu móðir greifar hjá.
- 44. Þeir voru tveir í laufa lest
- lífi hlífa kóngsins bezt,
- fríðan síðan finna hest;
- fengið þengill hafði brest.
- 45. Sundur er undinn armur hans;
- illa vill til stýrir lands;
- fluttu stutt úr fleina krans;
- farið var megn þess gamla manns.
- 46. Heiðnir reiða Rögnirs tenn,
- ráku af fákum kristna menn;
- tíu að vígi sóttu senn;
- sér það gjörla Pontus enn.
- 47. Herrum snerra horfðist lítt;
- hrynja brynjur sunudr vítt;
- heiðnum leiðum lætur blítt,
- ljótir spjótum sóttu strítt.
- 48. Úr benjum grenjar fylvings flóð;
- féll á velli kristin þjóð;
- á víga stígum Vernarð stóð,
- varðist harður af grimmum móð.
- 49. Dauðans nauð var halnum hjá,
- horfðist morð fyrir augum þá,
- kallar snjallur kóngsson á,
- kappi stappar hvörn sem má:
- 50. „Það mun ráð um þetta bil
- þegnum vegni nokkur skil;
- hríð er stríð, ef stendur spil;
- styrkjum Tyrki dauða til.“
- 51. Geystan þeysti heiftin heit,
- heiðna reiður fylking sleit;
- styggðist hryggð, þá lýði leit
- liggja tiggjans dauða sveit.
- 52. Undrum sundrast fylking frá;
- fljótt komst dróttin hesta á;
- fjöldi hölda fallinn lá;
- frakkir hlakka kristnir þá.
- 53. Kalla fall að Códrus leit
- krjúpa djúpan Heljar reit;
- æðin skæð að brjóstið beit;
- bugaði hugur kóngsins sveit.
- 54. Klén á enni kóngur þar
- kórónu stóra á höfði bar,
- af hreinum steina hjálmi var,
- hann er mann til víga snar.
- 55. Lög með slögum lýðum gaf,
- ljómar sóma kóngsins af;
- prýðin skrýðir stála staf,
- stakk á blakki menn á kaf.
- 56. Vilhjálm skilur við vænan hest,
- vegur nú þegar allra mest;
- þá honum frá að flúði flest,
- fengu drengir launin vest.
- 57. Fríðir ríða hans frændur tveir,
- flóttann skjótt að auka þeir,
- ofsi griðrofs eykst þess meir,
- ýtum býta högg af geir.
- 58. Klauf með laufa Carpadón,
- kristnir misstu lönd og frón,
- hlíf sem líf og hrepptu tjón,
- Hildar gildan auka són.
- 59. Próílus hjó á hendur tvær,
- hvað sem að honum kemur nær;
- óttinn sótti þjóðir þær;
- þrenna menn í höggi slær.
- 60. Renndi bendir fífu fleygs
- fram að gamni bitla smeygs;
- nísti kristna vopnin veigs;
- vitur situr á stóli kleyks.
- 61. Andri granda öflgan sér
- illa spilla kristnum her,
- manni hann í móti fer,
- mund af lundi fleina sker.
- 62. Hvekkinn þekkist Heljar boð,
- af hjóli Próílus steypti goð;
- vestum brestur veita stoð
- viljann til í fleina roð.
- 63. Herlant sér, að Carpadón kann
- kljúfa og rjúfa heila rann;
- fyrstur býst hinn frægi mann
- finna svinnur vilja hann.
- 64. Reiður að heiðnum skafti skaut
- skjaldar Baldur ekki naut,
- lund af fundi lífið þraut,
- langan gang úr söðli hraut.
- 65. Gramur framur, gildur skeið
- gegnum þegna fylking reið;
- öllum snjöll varð útför greið,
- er hans verju höggva beið.
- 66. Códrus hjó þá kristna menn,
- klýfur hlífar allar senn;
- allt er valt við endann enn,
- ævin hæf, er verður tvenn.
- 67. Vekur þrekinn vopna skúr,
- í verki sterkur eins og múr,
- argan varg að oddi trúr
- öðling söðli stingur úr.
- 68. Hans af vanza brotna bein;
- bót á móti verður sein;
- sveinninn einn með grimmdar grein
- geystur þeysti að vinna mein.
- 69. Gríður stríð með grátna kinn
- gekk hjá rekk að bergi inn,
- stríðs í bý nam stöðvast stinn,
- strylla fyllir munninn sinn.
- 70. Códrus dó við kappans högg;
- kæti bætist mörgum snögg;
- ljósir hrósa lýðir rögg;
- linnir stinnri örva dögg.
- 71. Úðum flúðu allir braut,
- undan skunda vildu þraut;
- flest af hestum falla hlaut;
- friðar biðja enginn naut.
- 72. Græn að spænist fold sem fjög,
- flýðu þýðin illsku rög;
- hauður rauðum litaðist lög,
- leyfir hreyfa öngan sög.
- 73. Ótt nam flóttann elta þá;
- allir falla heiðnir frá;
- virða hirð um völlu lá,
- vigra sigri hrósa má.
- 74. Plagaði fagur Pontus hvekk
- með prís að vísu heiðnum rekk,
- orma storm að stilltan fékk;
- styrjar byr að óskum gekk.
- 75. Ærið kæri eg orðbragð ljótt,
- uggi eg stuggi þar við drótt;
- kvæðin mæða skáldin fljótt;
- skal því tali hætta ótt.
- 76. Óðinn fljóðið eignast má,
- ungri sunginn verði sá;
- að vetri betri víst skal tjá,
- víf, ef lífi held eg þá.
- 77. Þetta af fréttum þiggja skalt,
- þessu vessi í minni halt;
- hrörnar kvörnum hróðrar malt,
- hjalið mala að sinni allt.
- 78. Illa snilli orða fer;
- endir lendi rímu hér;
- horna þornar hróðrar ver;
- hverfur erfi Gillings mér.
Heimild
[breyta]- Grímur M. Helgason (ritstj.) (1961). Rit Rímnafélagsins X : Pontus rímur. Reykjavík: Rímnafélagið.