Promeþevs bundinn II

Úr Wikiheimild

Ljóðið Promeþves bundinn II

Upp í Kákasusfjöllum liggur Promeþves í fjötrum Mennirnir beisla náttúruöflin, og verður þeim undirgefnir. Mennirnir smíða vélar og stjórna þeim. Sjálfir eru þeir vélar, sem þeir kunna ekki að stjórna Mennirnir eigna sér alla hluti. Sjálfa sig eiga þeir ekki. Mennirnir krjúpa á kné og hugsa um jarðnesk og himnesk hlutabréf. Þetta er þeim leyndarómurinn mikli. Mennirnir opna nægtabúr náttúrinnar. Hún ofmettar líkama þeirra,ástríður og skynsemi. En sálirnar þeirra svelta. Mennirnir eignuðust eldinn. En allt, sem eldurinn hefur skapað, er orðið að hlekkjum.