Sofðu, unga ástin mín
Útlit
Sofðu, unga ástin mín
Höfundur: Jóhann Sigurjónsson
Höfundur: Jóhann Sigurjónsson
- Sofðu, unga ástin mín,
- - úti regnið grætur.
- Mamma geymir gullin þín,
- gamla leggi og völuskrín.
- Við skulum ekki vaka um dimmar nætur.
- Það er margt sem myrkrið veit,
- - minn er hugur þungur.
- Oft ég svarta sandinn leit
- svíða grænan engireit.
- Í jöklinum hljóða dauðadjúpar sprungur.
- Sofðu lengi, sofðu rótt,
- seint mun bezt að vakna.
- Mæðan kenna mun þér fljótt,
- meðan hallar degi skjótt,
- að mennirnir elska, missa, gráta og sakna.