Spjall:Sagan af Heljarslóðarorrustu

Page contents not supported in other languages.
Úr Wikiheimild

Heljarslóðarorusta er vissulega skyldulesning. En þarf ekki að prófarkalesa þetta, þar eð fyrnskuleg stafsetning Gröndals er stór hluti af stílbrögðunum? Kveðja Io 14. janúar 2006 kl. 21:47 (UTC)[svara]

Ég hef engin tök á því, er ekki með annan texta en þann hjá Netútgáfunni. Hvað með þig? - Haukur 14. janúar 2006 kl. 22:05 (UTC)[svara]
Við ættum samt að reyna að fá á hreint hvort það sé í lagi að textinn sé hérna áður en við leggjumst í yfirlestur. Hmm, auðvitað væri náttúrlega alltaf gott að lesa þetta yfir, það væri þá hægt að senda leiðréttingar til baka. Stefán Ingi 14. janúar 2006 kl. 22:07 (UTC)[svara]
Já, við þurfum að finna almennilega út úr þessu. Síðan er orðin nokkuð snyrtileg núna. Eigum við að skrifa Netútgáfunni bréf? Eða er eftir e-u að bíða? - Haukur 14. janúar 2006 kl. 22:12 (UTC)[svara]
Ég sé ekki að það sé eftir neinu að bíða. Værir þú, Haukur, til í að skrifa uppkast. Stefán Ingi 14. janúar 2006 kl. 22:16 (UTC)[svara]
Eins og þú vilt. Ég set það í samfélagsgáttina. - Haukur 14. janúar 2006 kl. 22:25 (UTC)[svara]
Ég á Heljarslóðarorustu. Ég skal setja samlestur á listann, en sá listi er raunar farinn að lengjast nokkuð. Það yrði þá aðeins kafli og kafli í einu, þegar mig langar til — enda lít ég raunar svo á, að þátttaka í öllum Wikiverkefnum eigi að vera mönnum til skemmtunar. Kveðja Io 14. janúar 2006 kl. 23:04 (UTC)[svara]
Það liggur ekkert á - og endilega gerðu ekkert nema þú hafir einhverja fróun af því :) Maður þarf að vera í réttu sálarástandi til að nenna að prófarkalesa. - Haukur 14. janúar 2006 kl. 23:11 (UTC)[svara]