Fara í innihald

Stökur

Úr Wikiheimild
1.
Ást er föstum áþekk tind,
ást er veik sem bóla,
ást er fædd og alin blind,
ást sér gegnum hóla.


2.
Orður og titlar, úrelt þing, —
eins og dæmin sanna, —
notast oft sem uppfylling
í eyður verðleikanna.


3.
Lastaranum líkar ei neitt,
lætur hann ganga róginn.
Finni hann laufblað fölnað eitt,
þá fordæmir hann skóginn.


4.
Með oflofi teygður á eyrum var hann,
svo öll við það sannindi rengdust.
En ekki um einn þumlung hann vaxa samt vann,
— það voru aðeins eyrun, sem lengdust.


5.
Grammatíkus greitt um völl
gekk með tínukerin;
hann hirti spörðin, eg held öll,
en eftir skildi berin.