Stormur
Útlit
Stormur
Höfundur: Hannes Hafstein
Höfundur: Hannes Hafstein
- Ég elska þig, stormur, sem geisar um grund
- og gleðiþyt vekur í blaðstyrkum lund,
- en gráfeysknu kvistina bugar og brýtur
- og bjarkirnar treystir um leið og þú þýtur.
- Þú skefur burt fannir af foldu og hól,
- þú feykir burt skýjum frá ylbjartri sól,
- og neistann upp blæs þú og bálar upp loga
- og bryddir með glitskrúði úthöf og voga.
- Þú þenur út seglin og byrðinginn ber
- og birtandi, andhreinn um jörðina fer;
- þú loftilla, dáðlausa lognmollu hrekur
- og lífsanda starfandi hvarvetna vekur.
- Og þegar þú sigrandi´ um foldina fer,
- þá finn ég, að þrótturinn eflist í mér.
- Ég elska þig, kraftur, sem öldurnar reisir,
- ég elska þig, máttur, sem þokuna leysir.
- Ég elska þig, elska þig, eilífa stríð,
- með ólgandi blóði þér söng minn ég býð.
- Þú alfrjálsi loftfari, hamast þú hraður;
- hugur minn fylgir þér, djarfur og glaður.