Vallarakvæði
Útlit
Vallarakvæði (Systrakvæði eða Þorkelsdætrakvæði) er norrænn sagnadans eða vikivaki sem lifað hefur á vörum Íslendinga frá siðaskiptum.
- 1. Þorkell átti dætur þrjár
- leikara dýr í skógi
- langt á morgna sváfu þær,
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- Eða: 1. Þorkell átti dætur þrjár
- lét mér blítt veröldin
- langt á morgna sváfu þær,
- nú fölnar fögur fold,
- langt er síðan mitt var yndið lagt niðrí,
- langt er síðan mitt var yndið lagt niðrí mold.
- 2. Sváfu þær svo lengi
- leikara dýr í skógi
- að sólin skein á mengi,
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 3. Svá þær svo langa stund
- leikara dýr í skógi
- að sólin skein á heiðar mund,
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 4. Gengu þær sig til brunna,
- leikara dýr í skógi
- þvoðu hendur og munna,
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 5. Gengu þær sig til kirkju,
- leikara dýr í skógi
- öxluðu yfir sig skikkju,
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 6. Gengu þær á björgin fram
- leikara dýr í skógi
- hittu þær fyrir sér háan mann,
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 7. Hittu þær mann á fjöllum,
- leikara dýr í skógi
- sá var líkur tröllum,
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 8. Þegar þær komu á miðja leið
- leikara dýr í skógi
- hittu þær fyrir sig vallara einn,
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 9. Vallarinn ríður hvítum hesti
- leikara dýr í skógi
- honum var þá hugurinn mesti,
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 10. „Heilar og sælar séuð þið!
- leikara dýr í skógi
- Hvaða kirkju þjónið þið?
- Frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 11. Hvort eruð þið frá jörlum,
- leikara dýr í skógi
- eða frá stafkörlum?"
- Frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 12. „Hvorki erum við frá jörlum,
- leikara dýr í skógi
- né stafkörlum,"
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 13. „Hvort eruð þið frá álfum,
- leikara dýr í skógi
- eða kóngi sjálfum?"
- Frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 14. „Hvorki erum við frá álfum
- leikara dýr í skógi
- né kóngi sjálfum,
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 15. Þorkels dætur erum við,
- leikara dýr í skógi
- Maríukirkju þjónum við,"
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 16. „Hvort viljið þið heldur láta ykkar líf,
- leikara dýr í skógi
- eða vera mín eigin víf"?
- Frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 17. Svaraði sú hin yngri,
- leikara dýr í skógi
- „hvor mun þrautin þyngri?"
- Frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 18. Svaraði sú hin eldri,
- leikara dýr í skógi
- „dauðann kýs ég heldur,
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 19. Heldur viljum við láta okkar víf
- leikara dýr í skógi
- en að vera þín eigin víf,"
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 20. Tók hann upp sinn tygilkníf,
- leikara dýr í skógi
- systra beggja sveik hann líf,
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 21. Reif hann af þeim silkiserk,
- leikara dýr í skógi
- háðug voru hans handaverk,
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 22. Hann skar af þeim höfuð og fætur
- leikara dýr í skógi
- og gróf þær undir viðar rætur,
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 23. Sté hann á sinn gráa hest,
- leikara dýr í skógi
- allra manna reið hann mest,
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 24. Hann kom þar að kveldi
- leikara dýr í skógi
- sem Þorkell réð fyrir veldi,
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 25. Reið hann heim á Þorkels garð,
- leikara dýr í skógi
- Ása ein þar fyrir var,
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 26. Klappar á dyr með lófa sín,
- leikara dýr í skógi
- „ljúktu upp, litla Ása mín,"
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 27. „Ég læt hér engan inn um sinn,
- leikara dýr í skógi
- við engan hef ég stefnt hér inn,
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 28. Ég læt hér engan inn um nátt,
- leikara dýr í skógi
- því engar hef ég stefnur átt,
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 29. Ég læt hér engar lokur í frá
- leikara dýr í skógi
- því engin þernan stár mér hjá,"
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 30. En nettar hafði hann fingur og smá,
- leikara dýr í skógi
- með listum plokkar hann lokur frá,
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 31. Ása kastar kodda blá;
- leikara dýr í skógi
- „Stóri maður, sittu þar á!"
- Frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 32. „Ása litla, sof hjá mér,
- leikara dýr í skógi
- silkiserkinn gef ég þér,"
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 33. „Leys upp sekk og lát mig sjá!"
- leikara dýr í skógi
- systraklæðin þekkti hún þá,
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 34. Bíddu mín í litla stund,
- leikara dýr í skógi
- meðan ég geng í grænan lund,
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 35. Sté hún í það háa loft,
- leikara dýr í skógi
- hennar faðir svaf þar oft,
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 36. „Stattu upp, Þorkell, faðir minn,
- leikara dýr í skógi
- kominn er dætrabani þinn!"
- Frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 37. Þorkell hrindir borðum fram,
- leikara dýr í skógi
- svo brúni mjöður um gólfið rann,
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 38. Þorkell kastar hörpu á gólf,
- leikara dýr í skógi
- stukku úr henni strengir tólf,
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 39. Þorkell kastar í annað sinn,
- leikara dýr í skógi
- stukku úr henni strengir fimm,
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 40. „Velkominn Gunnar, mágur minn,
- leikara dýr í skógi
- nú er í boði mjöður og vín!"
- Frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 41. Börðust þeir í dagana þrjá
- leikara dýr í skógi
- Þorkell vann þeim þrælnum á,
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 42. Reif hann í hans gula lokk,
- leikara dýr í skógi
- og hjó hann niður við hallarstokk,
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 43. Fjórða daginn fyrir sól,
- leikara dýr í skógi
- skálkurinn hékk í harðri ól,
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 44. Þorkell leit í austurheim,
- leikara dýr í skógi
- logaði ljós yfir systrum tveim,
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 45. Þegar þær komu í kirkju inn,
- leikara dýr í skógi
- hringdust yfir þeim klukkur fimm,
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 46. Þegar þær komu á kirkjugólf,
- leikara dýr í skógi
- hringust yfir þeim klukkur tólf,
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.
- 47. Vendi ég mínu kvæði í kross,
- leikara dýr í skógi
- heilög María sé með oss,
- frúinnar sómi, vel frúinnar sómi.