Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Draugasögur/Bjarna-Dísa

Úr Wikiheimild
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Bjarna-Dísa

Maður hét Bjarni; hann var Þorgeirsson. Hann var á dögum seint á 18. öld og fram yfir 1840. Systur átti hann er Þórdís hét; hún var um tvítugt þegar þessi saga gjörðist. Þórdís var þokkaleg sýnum, en þókti fremur svarri í geði. Hún hélt mikið til í klæðaburði og apaði það hún gat eftir dönsku kvenfólki, enda var hún til vistar á Eskjufjarðarkaupstað seinasta ár sem hún lifði.

So bar til að Bjarni Þorgeirsson ferðaðist ofan á Eskifjörð; slóst þá Dísa í ferð með bróður sínum og ætlaði með honum til Seyðisfjarðar hvar Bjarni þá átti heimili. Er ekki sagt af ferðum þeirra fyrr en þau tóku sér gisting á Þrándarstöðum í Eiðaþinghá. Þetta var fyrri part þorra. Þar vóru þau eina nótt. En næsta morgun þegar þau vildu halda ofan yfir Fjarðarheiði var veður þykkt og snæfall með talsverðu frosti. Innti þá Bjarni til við systur sína að hún skyldi vera eftir, því veður væri ótryggilegt. en hún klædd til stáss en ekki skjóls. Hún var í einföldum léreftskjól og léreftsskyrtu ermalausri fyrir framan olboga; þá kallaði hún serk og vildi ei sjá öðruvísi snið á skyrtu. Klút hafði hún á höfði rauðan og brúnan og illa klædd til handa og fóta. Ekki tók Dísa því vel að sitja eftir; kvaðst hún fara skyldi með honum hvurt hann vildi eða ekki. Sló þegar í deilu með þeim, og héldu so af stað bæði í illu skapi, lögðu upp á heiðina þrátt fyrir það þó veðrið meir og meir versnaði. Nú kom þar að Bjarni vissi ekkert hvað hann fór, en Dísa mæddist bæði af kulda og þreytu, en alltaf gat hún nokkuð jagazt unz hana þó þraut með öllu gang. Tók þá Bjarni til að grafa þau í fönn. En þegar hann var að ljúka við það sýndist honum rífa í mel skammt í burt; sagði þá Dísu að hann vildi koma þar og vita ef hann þekkti melinn. Hún bað hann fara ei frá sér, en það tjáði ei. Fór so Bjarni, en þá skelldi saman veðrið. Fann hann so hvurki melinn né Dísu aftur. Hélt hann samt eitthvað í ráðleysu unz hann í vökulok um kvöldið skreiddist að Firði í Seyðisfirði næstum örmagna, mállaus og mikið skemmdur á andliti. Hafði hann villzt út eftir fjallinu og hrapað fyrir klungur og kletta, misst af sér höfuðfatið, og allt úr góðu lagi. Þá bjó í Firði bóndi sá er hét Þorvaldur Ögmundsson. Hann var mikill fyrir sér, ramur að afli og hinn hugrakkasti. Sögðu þeir sem þekktu hann að hann kynni ekki að hræðast. Hann var hreinlyndur og fljótlyndur, eldsnar og hinn mesti greiðamaður. Hann tók vel móti Bjarna; lét hann hjúkra honum sem mest mátti. En ekki var það fyrr en kvöldið eftir að Bjarni varð fær að segja ferðasögu sína; so var af honum dregið. Bað hann þá Þorvald styrkja sig til að leita systur sinnar, en veðrið hélzt enn hið sama. Það var útnorðan mjög hvasst og dimmt, en frost so mikið að valla var fært hraustum kallmönnum heimahúsa á milli. Þar var Bjarni so aðra nótt.

En á fimmta dægri eftir að hann skildi við Dísu rofaði lítið eitt til. Bjuggust þeir þá til ferða Þorvaldur, Bjarni og vinnumaður að nafni Jón Bjarnason, duglegur maður og drengur góður; héldu svo upp til heiðar, en þó nokkuð frá alfaravegi því það var geta Bjarna að þar mundi hennar helzt að leita. Þegar þeir vóru komnir norður fyrir Stafdalsfell heyrðu þeir öskur svo mikið að undir drundi í öllum fjöllum nálægt. Skaut þeim Jóni og Bjarna þá heldur en ekki skelk í bringu, en Þorvaldur vissi ekki hvað það var að hræðast. Hélt hann þá í þá átt er hljóðið heyrðist frá unz hann kom í Stafdal austarlega. Vóru þá félagar hans farnir að draga sig á eftir honum. Frýjaði þá Þorvaldur Jóni hugar að fylgja sér betur. Þá var dagur þrotinn, en veður nokkuð bjart, frostbitra fram úr keyrandi. Tunglskin var á, en skýjarek so tíðum dró fyrir það. Þá sá Þorvaldur eitthvað á skafli sem hann átti þar ei von, sem þó vel var kunnugur. Það var hér um teigshæð frá þeim. Þá mælti hann til þeirra: „Þar mun nú Þórdís vera;“ og var það líka sem hann sagði. Gekk hann so til hennar. Var hún þá ei, sem hann mundi vænta dauðrar manneskju, liggjandi, heldur er hún því líkast sem menn eru á setum sínum. Léreftskjóllinn var í göndli um mittið á henni gaddfrosinn og hún ber fyrir neðan og berhöfðuð, snjóhúsið burt fokið, so aðeins sást botninn. Talaði þá Þorvaldur til félaga sinna að þeir skyldu ganga nær og hjálpa sér til að búa um líkið á húð er hann hafði með sér til akfæra; dröttuðu þeir þá til hans. Sagði hann þá Bjarna að skera frostgarðinn utan af henni, því hann vildi færa hana í buxur sem hann hafði með sér so hún væri ekki nakin í flutningnum. Því hlýddi Bjarni, þó hræddur væri. Síðan tók Þorvaldur hana upp í fang sér og ætlaði að færa hana í buxurnar, en í því rak hún upp so mikið orghljóð að fram úr hófi keyrði. Hefur Þorvaldur so sagt að það hafi sér þótt óskiljanlega sterkt og mikið. Hrukku þá félagar hans frá dauðhræddir, en Þorvaldi brá so við að hann skaut Dísu hart niður og mælti heldur fljótlega: „Ónýtt er þér, Dísa, að sýna mér þessa hnykki því þá hræðist ég alls ekki. Og haldirðu þeim fram skaltu vita að ég skal tæta þig taug frá taug og kasta so hræi þínu fyrir varga. En þar á mót, verðir þú oss venjulega dæl í flutningi og okkur áhankast ekkert með þig ofan skal ég gjöra kistu um þig og koma þér í kristinna manna reit þó mér ímyndist að þú sért þess ei verðug.“ Eftir það tók hann hana, klæddi og bjó um á húðinni, kallaði félaga sína og hélt heimleiðis.

Það hafði Þorvaldur aðgætt að frá bæli Dísu lágu för hennar með þeim hætti að hún hafði fetað so hvurt far var í öðru hér um fjóra faðma burt og stokkið so öfug í einu hlaupi jafnfætis aftur í bælið. Að þessu var hún búin tvívegis. Hafði so sagt Hermann í Firði í Mjóafirði sem var kallaður margfróður að þetta væri vani þeirra er aftur gengi, og næði þeir að gjöra þetta þrisvar þá væri fullkomin afturgangan; en Dísu vantaði þriðja sporið.

Nú héldu þeir ofan af heiðinni. Dreif þá yfir veðrið so dimmt að ekki var ratandi. Komust þeir þó klaklaust að Fjarðarseli. Er þá stutt bæjarleið út að Firði út með fjallsbríkum og treysti ekki Þorvaldur sér vel að rata upp [í] Fjörð; bað því sér og föruneyti sínu gistingar. En bóndi þverneitaði; kvaðst hafa orðið var við ónotafylgju þeirra. Tók Þorvaldur þá til sinna ráða; setti líkið inn í kofa gegnt baðstofudyrum og gekk so með félögum sínum til baðstofu. En bóndi með syni sínum settist á pallstokk; þeir hétu hvur tveggja Björn; tóku sér broddstafi í hönd og lögðu jafnt og títt fram í dyrnar; því héldu þeir af nóttina. Ekki varð Þorvaldi svefnsamt, fór ekki af fötum og gekk einatt út að líta til veðurs. Eitt sinn um nóttina þegar hann vildi hverfa í bæinn varð Dísa fyrir honum í dyrum eins og hún vildi aftra honum inngöngu; en hann veik henni hjá sér og skundaði til baðstofu. Með degi rofaði veðrið so þeir komust heim að Firði. Jafnan þókti skráveifur í kofa þeim er Dísa var í um nóttina. Nú tók Þorvaldur til kistusmíðis eins og hann hét og lét so flytja Dísu að Dvergasteini. Þar var þá prestur síra Þorsteinn Jónsson skáldið. Hann veitti Dísu greftrun að kristnum sið. En so brá við að næsta morgun eftir var í fótaenda á leiði Dísu hola undarlega djúp. Var hún fyllt, en eins var hún opin annan morgun. Enn var hún fyllt, en þriðja morgun var hún opin. Gekk þá prestur sjálfur til og lukti hana. Segja menn að upp frá því hafi hún ekki opnazt.

Nú er að segja frá Bjarna að ætíð þá hann ætlaði að sofna kom Dísa og vildi taka um kverkar honum og fór ekkert dult með, því það mátti um hana segja sem Þorgerði hörgabrúði í Jómsvíkingarímum að „eins þann sáu illa gest óskyggnir sem hinir.“ Það sögðu menn að hún hefði oft sókt að honum þó ljós væri hjá honum. Fór hann þá til síra Þorsteins sem áður er getið og fékk hjá honum einhvurja verju, so aldrei vann Dísa á honum sjálfum. Þrettán börn átti Bjarni og dóu þau öll ung og bráðlega. Hafa menn haft fyrir satt að Dísa hafi flýtt fyrir dauða allra þeirra. Hún fylgdi Bjarna til dauðadags; gerði þá oft mikið vart við sig, drap skepnur manna og stundum réðist hún á menn til átaka og eru margar smásögur af brellum hennar sem of langt væri hér upp að telja; – Og lýkur so hér frá Bjarna-Dísu.[1]

  1. Aðrar sögur segja að Þorvaldur hafi brotið Dísu á bak aftur til þess hún væri kyrr og hætti hún þá að orga; margar eru fleiri ljótar sagnir um viðureign þeirra. Þorvaldur var maður vandaður og guðhræddur, en með hjátrú eins og flestir á 18. öld og mun það réttast sem hann sagði frá sjálfur. – Sögur segja að þau Bjarni hafi haft brennivínskút; muni Dísa hafa verið drukkin og lifað, en Þorvaldur gjört út af við hana í hjátrúaræði. – S. G.