Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Draugasögur/Helltu út úr einum kút

Úr Wikiheimild
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri  (1862) 
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
„Helltu út úr einum kút“

Einhvern tíma voru tveir kunningjar, annar ungur, en hinn aldurhniginn; er svo sagt hann væri ölkær og hafði hinn yngri lofað að bjóða honum í veizlu sína. En áður hún yrði haldin dó hinn gamli maður. Var hann grafinn á hinum sama kirkjustað og hinn kvæntist, og var veizlan haldin á kirkjustaðnum. Um nóttina dreymdi brúðgumann að vinur sinn kæmi til sín. Hann kvað:

„Helltu út úr einum kút[1]
ofan í gröf mér búna,
beinin mín í brennuvín
bráðlega langa núna.“

Hann fór á fætur og hellti úr fjögra potta kút yfir leiði vinar síns og dreymdi hann ekki framar.

  1. Sigurður málari Guðmundsson hefur fyrsta vo. þannig:
    „Helltu' úr kút með enga sút.“