Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Draugasögur/Séra Þorlákur Þórarinsson

Úr Wikiheimild
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri  (1862) 
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Séra Þorlákur Þórarinsson

Nóttina eftir að séra Þorlákur Þórarinsson drukknaði í Hörgá dreymdi stúlku nokkra er var honum kunnug að hann kæmi til hennar og kvæði:

„Dauðinn fór djarft að mér,
dauðanum enginn ver;
dauðinn er súr og sætur,
samt er hann víst ágætur
þeim sem í drottni deyja
og dóminum eftir þreyja.“