Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Galdrasögur/Biskupinn og vínið

Úr Wikiheimild

Einu sinni kom biskup að Vogsósum á vísitatíuferð; þá átti Eiríkur engan vínsopa og þótti honum illt að geta ekki gefið biskupi í staupinu. Hann sat þegjandi um stund, sprettur upp síðan og gengur út, kom inn aftur með fulla flösku (aðrir segja kút) af víni og mælti: „Þetta var mér sent núna.“ Síðan drukku þeir eftir lyst sinni.