Fara í innihald

Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Galdrasögur/Eiríkur frelsar konur frá óvættum

Úr Wikiheimild
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri (1862)
Eiríkur frelsar konur frá óvættum

1.

[breyta]

Bóndi nokkur úr Landeyjum sem var kunningi Eiríks prests kom eitthvurt vor sunnan ur Njarðvíkum í lok ríðandi því hann hafði haft hjá sér hestinn um vertíðina. Hann kom að Vogsósum; Eiríkur er úti og fagnar honum vel og mælti: „Ertu vel ríðandi heillin góð?“ Bóndi kvað það ekki vera, kvað hestinn bæði magran og illa járnaðan. Eiríkur mælti: „Þú þarft þó að flýta þér heim því kona þín liggur fyrir dauðanum.“ Bóndi mælti: „Hvað er nú til ráða?“ Eiríkur gengur að hestinum og skoðar undir honum járnin, hrækir neðan í hófana og mælti síðan: „Farðu á bak og ríddu meðan hesturinn þolir; má vera hann sé seigur. Þegar þú kemur í hlaðið muntu heyra út hljóðin konu þinnar; far þá inn hvatlega og heilsa ekki, en mæl snöggt: „Eiríkur á Vogsósum vill finna þig,“ og vit hversu þá fer.“ Bóndi þakkar honum ráðin og fer af stað; ber hesturinn hann skjótar yfir en hann varði og kom hann heim á þeim sama degi og heyrir þegar hljóð konunnar og fer nú sem Eiríkur réði honum. Við það brá konunni svo að hún varð innan stundar heilbrigð.

Þetta sama kvöld var barið á dyr á Vogsósum allstórkostlega. Eiríkur fer til dyra og var litla stund úti, kom svo inn aftur. Var hann þá spurður hvur komið hefði. Hann mælti: „Það var einhvur sem átti erindi við mig.“

Þá bóndi fór í verið næst eftir launaði hann Eiríki vel hjálpina.

2.

[breyta]

Nýgiftur bóndi í Vestmannaeyjum ungur og efnilegur missti konu sína á þann hátt að einu sinni sem oftar fór hún snemma á fætur, en bóndi var í rekkju; hún fór að lífga eldinn að vana, en var nú lengur burtu en hún var vön svo bónda leiddist. Fer hann á fætur og fer að gá að henni og finnur hana ekki í bænum. Þá fer hann út um kotin að spyrja að henni, en enginn hafði orðið var við hana þann morgun. Er hennar nú leitað með mannsöfnuði þann dag og hvurn eftir annan og finnst hún ekki.

Bónda varð svo mikið um hvarf hennar að hann lagðist í rekkju og neytti hvurki svefns né matar, og liðu nú stundir og var hann æ því aumari sem hann lá lengur. Féll honum það þyngst að vita ekkert hvað konu sinni hefði að bana orðið því vita þóttist hann að hún mundi dauð vera, og líkast að hún væri komin í sjóinn. Héldu menn að bóndi mundi veslast upp og deyja því hvursu sem menn reyndu til að hugga hann var honum æ þyngra. Loksins kom einn kunningi hans til hans og mælti: „Ætli þú reyndir ekki til að fara á fætur ef ég gæti ráðið þér það ráð er von væri að dygði til að þú yrðir þess vísari hvað orðið hefur af konu þinni?“ „Það vildi ég til vinna ef ég gæti,“ sagði bóndi. Maðurinn svarar: „Hresstu þig nú og far á fætur og nær þig, far síðan á land og ferðast út í Selvog til Eiríks prests á Vogsósum; bið hann að grennslast eftir hvað orðið er [af] konunni.“

Bóndi gladdist nokkuð við þetta, klæðist síðan og etur mat og hressist síðan smám saman þar til hann treystist að fara í land, og segir ekki af ferð hans fyrr en hann kemur að Vogsósum. Er Eiríkur úti og fagnar honum vel og spyr að erindum, en bóndi sagði sem var. Eiríkur mælti: „Ekki veit ég hvað orðið hefur af konu þinni, en ef þú vilt þá vertu hér nokkra daga og sjáum hvað gerist.“ Það þekkist bóndi.

Líða nú tveir dagar eða þrír. Þá lætur Eiríkur leiða heim hesta tvo gráa; annar var dáfallegur, hinn ljótur og magur. Þann lét Eiríkur söðla handa sér, hinn handa bónda og mælti: „Við skulum ríða út á sand.“ Bóndi mælti: „Farið ekki á bak horgrind þessari; hann ber yður ekki.“ Eiríkur lét sem hann heyrði það ekki. Ríða þeir nú af stað, en stormur var og regn mikið. Þá þeir koma út fyrir ós fer hinn horaði hestur að hvetja sporið og dró fljótt undan. Bóndi reið eftir sem hann mátti, en Eiríkur hvarf honum brátt. Þó hélt hann áfram og þar til hann kom út undir Geitahlíð að steinum þeim er Sýslusteinar heita og skilja Árness- og Gullbringusýslur. Þar er Eiríkur fyrir og hefur lagt bók allstóra opna ofan á hinn meiri steininn. Ekki kom regndropi á hana og ekki blakti blað í henni þó ofviðrið væri. Eiríkur gekk andsælis kringum steininn og mælti eitthvað fyrir munni sér, segir síðan við bónda: „Taktu eftir hvurt þú sér konu þína koma.“ Kemur nú fjöldi fólks utan að steininum og gekk bóndi hring úr hring fyrir hvurn mann og fann ekki konuna. Hann segir Eiríki það. Hann mælti þá við fólkið: „Farið í friði, hafið þökk fyrir hérkomuna.“ Þeir hverfa burt þegar. Eiríkur fletti nokkrum blöðum í bókinni og fór nú allt sem fyrr. Reynir hann hið þriðja sinn og fer það eins. Þegar þessi flokkur er burt farinn mælti Eiríkur: „Var hún aldeilis ekki í neinum hópnum?“ Bóndi kvað það ekki vera. Þá roðnar Eiríkur og mælti: „Nú vandast ráðið heillin góð; hef ég nú stefnt hingað vættum öllum af jörð, úr jörð og úr sjó sem ég man eftir.“ Nú tekur hann kver úr barmi sínum, lítur í það og mælti: „Eftir eru hjónin í Háuhlíð.“ Hann leggur kverið opið ofan á bókina og gekk andsælis í kringum steininn og tautar sem fyrr. Þá koma þau og bera glersal milli sín; þar í sér bóndi konu sína. Eiríkur mælir við þau: „Illa gjörðuð þið að taka konuna frá manninum; farið aftur og hafið óþökk fyrir starf ykkar og gjörið slíkt ei oftar.“ Þau fara þegar, en Eiríkur brýtur glersalinn og tekur konuna og bækurnar og fer á bak með allt saman. Bóndi mælti: „Látið mig reiða konuna; hesturinn ber ykkur ekki bæði.“ Eiríkur kvaðst mundu sjá fyrir því og fer af stað og hvarf austur í hraunið. Bóndi fer leið sína austur að Vogsósum og er Eiríkur þar kominn, og um nóttina lætur hann konuna sofa í sínu rúmi, en sjálfur lá hann á bedda fyrir framan stokkinn.

Að morgni bjóst bóndi til ferða. Eiríkur mælti: „Það er ekki ráðlegt að sleppa konunni við þig svona og vil ég fylgja henni heim.“ Bóndi þakkar honum. Fer prestur á bak hinum magra klár og setur konuna á kné sér og fer af stað. Bóndi fór eftir og vissi ekki til Eiríks fyrr en hann kom út í Eyjar; þá er hann þar kominn með konuna. Háttar nú bóndi hjá henni um kvöldið, en Eiríkur vakti yfir þeirri næstu þrjár nætur. Síðan mælti hann: „Ekki er víst að öllum hefði þótt skemmtilegt að vaka þessar nætur og sízt í nótt, enda mun konunni óhætt héðan af.“ Meðan Eiríkur Vakti yfir konunni gaf hann henni drykk á hvurjum morgni og við það fékk hún aftur minnið sem hún hafði áður alveg tapað. Síðan fór Eiríkur heim og þá áður góðar gjafir af bónda.

3.

[breyta]

Önnur sögn er sú, þessari náskyld, að bóndi úr Ölfusi fór með konu sína suður í Innnesjakaupstaði. Á heimleiðinni lágu þau um nótt í Fóelluvötnum. Að morgni sótti bóndi hestana, en er hann kom aftur var konan burt. Hann leitar hennar og finnur ekki, fer síðan heim og er sorgbitinn mjög. Var honum þá ráðið að leita til séra Eiríks og það gjörði hann. Eiríkur mælti: „Farðu heim aftur og taktu tjaldið sem þið voruð í og allt sem í því var af umbúnaði; tjaldaðu því þar sem það stóð þegar konan hvarf og set hvora súlu og hvurn hæl í sína holu svo sem þá var.“ Bóndi fer og gjörir svo sem fyrir hann er lagt að svo miklu leyti sem hann getur hitt á, og þegar hann er búinn að þessu kemur Eiríkur þar og gengur andsælis kringum tjaldið, fer síðan inn og bað bónda gæta vel að ef konan kynni að koma. Litlu síðar sér bóndi ógurlega mikinn fjölda koma að tjaldinu, en ekki sér hann konuna, og er aðkomendur voru komnir svo margir að undrum gegndi kallar Eiríkur út úr tjaldinu og spyr hvort konan sé komin. Bóndi neitar. Eiríkur kom þá út og leit yfir hópinn og bað þá fara og hafa þökk fyrir þarkomuna; hverfur þá hópurinn þegar. Eiríkur mælti: „Hér komu allir vættir af landinu nema hjónin úr Herðubreið.“ Fer hann nú inn aftur og liggur lengi áður þau koma og leiða konuna milli sín. Þá kemur hann út og tekur konuna frá þeim og mælti: „Farið nú aftur og látið konuna kyrra; það er illur siður að taka konur frá mönnum eða annað fólk úr byggðum; látið gamla Eirík aldrei frétta að þið gjörið það oftar, og lofið því nú!“ Þau gjöra það þó treg væri og fara síðan burtu, en bóndi fór heim með konuna, og fylgdi Eiríkur honum og fór heim síðan; en konunnar var aldrei síðan vitjað af óvættum.