Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Galdrasögur/Jóhannes læknar kú

Úr Wikiheimild
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri  (1862) 
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Jóhannes læknar kú

Einu sinni veiktist kýr á bæ í grennd við Jóhannes; meintu menn að mundi af óhreinum anda, og var nú leitað lækninga kúnni til Jóhannesar að hann útræki andann. Jóhannes mælti að farið skyldi í fjósið og kallað hátt orðum þessum: „Jóhannes á Kirkjubóli biður að heilsa kúnni.“ Þetta var gjört sem hann mælti fyrir og batnaði kúnni.