Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Galdrasögur/Skrímslið í Arnarbæli

Úr Wikiheimild
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri  (1862) 
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Skrímslið í Arnarbæli

Einu sinni kom skrímsl upp úr Ölfusá og lagðist á yzta fjósbásinn í Arnarbæli. Það hafði sex fætur og þorði enginn að fara í fjósið fyrir því; svo var það ljótt og voðalegt. Var þá Eiríkur sóttur. En þegar hann kom í hlaðið á Arnarbæli kom skrímslið út úr fjósinu og skreið niður í ána. Eiríkur fylgdi því og hefur það ekki sézt síðan.