Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Galdrasögur/Snorri og Hornstrendingar

Úr Wikiheimild
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri  (1862) 
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Snorri og Hornstrendingar

Sagt er að séra Snorri á Húsafelli hafi verið kunnáttumaður og gætti þess þegar hann var í skóla. Skólabræður hans öfunduðu hann af afli hans og glímum og öðrum listum; svikust þeir eitt sinn að honum og gátu hrundið honum fram af hamri nokkrum ofan í Hvítá. En um kvöldið kom hann inn í skólann; urðu piltar þá hræddir og héldu hann væri afturgenginn, en hann kastaði gamanyrðum upp á þá og þakkaði þeim fyrir seinast.

Hann var fenginn til að gjörast prestur að Stað í Aðalvík því bændur þar vestra voru fjölkunnugir og létu presta sína illa sökum þess þeir settu ofan í við þá fyrir galdrana. Sumir bændur voru svo fornir í skapi að þeir ræktu hvorki kirkju né helgar tíðir; komu þeir saman að Hornbjargi og afleystu þar hvorir aðra einu sinni á ári. Voru það þá skriftamál þeirra: „Ég er eins og ég var í fyrra og engu betri.“ Margir vildu ekki heldur láta færa sig að kirkju andaða eða hafa helgan söng yfir sér. Ef prestar þeirra vönduðu um þetta drápu þeir þá með fjölkynngi og urðu þeir fæstir langgæðir.

Séra Snorri tók þegar að semja siðu bænda þegar hann kom vestur, en þeir brugðust illa við. Drápu þeir fénað fyrir presti og ásóttu sjálfan hann. En þar báru þeir ætíð lægri hlut hvort sem kom til kunnáttu eða karlmennsku enda gjörði hann stundum mótstöðumönnum sínum þær glettur að hann hvolfdi undir þeim og bjargaði þeim svo eða lét þá sitja í aflamissi. Hann kom öllum þeim sendingum fyrir er þeir sendu honum svo þeir komust seinast í þrot með þær.

Einn var verstur af mótstöðumönnum hans. Bóndi þessi var eitt sinn að smíðum niður við sjó fyrir framan bæ sinn og prestur líka; risti bóndi þá rúnir á kefli og fylgdi þeim sú náttúra að hver sem las varð blindur. Lét hann það síðan reka upp þar sem prestur var fyrir. Prestur varaðist ekki hrekk þennan, las rúnirnar og varð blindur, en þá greip hann til kveðskapar síns og kvað af sér blinduna. Síðan skóf hann allar rúnir af keflinu og fleygði því út og mælti: „Farðu til húsbónda þíns aftur og vertu bani hans ef hann ætlar aftur að hafa þig til ills.“ Bóndi sá fljótt keflið, greip hann það og ætlaði nú að rista þær rúnir er skyldu ríða presti að fullu. En knífurinn renndi út af keflinu og fyrir brjóst bónda svo á kafi stóð; varð það hans bani. Þó lauk svo að séra Snorri flúði að vestan að fáum árum liðnum, mest af því honum þótti viðurhlutamikið að iðka galdur, enda beitti hann honum aldrei síðan. Þótti Hornstrendingum samt mikil eftirsjá í honum og létu presta sína betur síðan.

Séra Snorri bannaði börnum sínum að láta heita eftir sér; þó brá eitt þeirra út af því og var það Snorri sá er hengdi sig á Bessastöðum.