Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Galdrasögur/Viðarflutningur kölska

Úr Wikiheimild
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri  (1862) 
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Viðarflutningur kölska

Skipaði Sæmundur þeim anda er hann sér til þénustu hafði undirgefinn að höggva upp skóg á Landskógi og hann síðan upphöggvinn heim til Odda að færa, hvað hann og gjörði. En í þeim hans heimflutningi lá beinsta leið til Odda þar sem heitir Varmidalur. Eru í þeim dal enn nú merki til sem á þeim flutningi skyldu orðið hafa sem eru grafir eða lautir í jörðina þar, hann viðinn skyldi um dregið hafa og orsakazt hefði af ofurþunga skógarins byrða og nú nafnkenndar Varmadalsgrafir, þau merki [eru] sönn og sjáanleg allt til þessa dags.