Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Kímnisögur/En guðsóttinn entist bezt
Útlit
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri
„En guðsóttinn entist bezt“
„En guðsóttinn entist bezt“
Bjarni Þórðarson á Siglunesi á Barðaströnd var eitt sinn, þá er hann var ungur, sumartíma á fiskiskútu, og er hann var spurður hvernig honum hefði þótt þar að fara kvað hann:
- „Á jaktinni eyddist flest.
- efnin hlaut að hafa hvur,
- en guðsóttinn entist bezt
- því aldrei var hann brúkaður.“