Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Kímnisögur/Húsbóndinn sagði mér að skera þig

Úr Wikiheimild
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
„Húsbóndinn sagði mér að skera þig“

Vinnumaður á bæ einum átti eitt sinn að skera gamalá; en er hann hafði lagt ána niður við trog jarmaði hún. Maðurinri meinti að hún bæði hann um líf, og mælti: „Ég get ekki gjört það, skepnan mín, því húsbóndinn sagði mér að skera þig.“ Drap hann svo ána.