Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Náttúrusögur/Þórstak á laxi

Úr Wikiheimild
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Þórstak á laxi

Þegar Loki var að flýja undan Ásum brá hann sér í laxlíki. Náði þá Þór utan um stirtluna og kreisti svo fast að inn klemmdust geislungarnir við sporðinn. Síðan stendur fyrir á sporðinum, sé gripið utan um stirtluna á laxinum, og heitir það Þórstak. En á urriðum og silungum er stirtlan afslepp því þar er ekkert Þórstakið.