Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Náttúrusögur/Brunnurinn á Hofi

Úr Wikiheimild
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri  (1862) 
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Brunnurinn á Hofi

Á Hofi á Kjalarnesi er ævagamall dómstaður og blótstaður. Þar er brunnur einn sem aldrei er byrgður og sem ekki má heldur byrgja. Sú er sögn um brunn þenna að á meðan hann sé opinn varist hvert barn brunninn og jafnvel ungbörnin snúi frá honum og kræki langar leiðir út fyrir hann. En ef brunnurinn er byrgður sé þess víst að vænta að eitthvert barn detti í hann og drukkni. Mörg dæmi þykjast menn vita til þessa.