Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Náttúrusögur/Illugatorfa

Úr Wikiheimild
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Illugatorfa

Illhugi hét prestur á Kálfafelli á Síðu. Hann lét eitur í sakramentisvínið og ætlaði að drepa með því óvin sinn, en tilræðið komst upp. Tóku bændur þá Illhuga prest höndum og fluttu hann upp á Kálfafellsheiði þangað sem nú heitir síðan Illhugatorfa. Vita menn ekki um Illhuga þann síðan.