Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Náttúrusögur/Sjór

Úr Wikiheimild
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri  (1862) 
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Sjór

Um sjóinn þekki ég aðeins þessar sagnir: Fyrst er það jafnsönn sem almenn sögn, einkum í brimlendingum, að þrjár öldur miklar fylgist jafnan að hver á eftir annari og heita þær ólag, en bilið sem verður á milli þeirra heitir lag. Fyrsta aldan er ávallt mest þeirra þriggja, en hinar minni. Enginn skyldi hugsa til að leggja að landi með fyrstu ólagsöldu eða verða svo seinn að taka lagið (nota hléð milli ólaganna) að fyrsta ólagsaldan nái honum; ekki tjáir heldur að leggja að landi með annari ólagsöldu því þá er enn hin þriðja vís. En þriðju ólagsöldu skal kappkosta að fylgja og „róa þá lífróður“ til þess að eiga lagið í hönd á eftir; er þá jafnan lífsvon og að lagið endist til að lenda á og bjarga skipi. Í laginu eru eins þrjár bárur og í ólaginu, en allar minni, og stundum þó fjórar; heitir þá fjórða báran aukabára. Stundum verður ekki lag eða hlé milli ólaga í langa tíma svo að tuttugu og fjórar, átján, tólf eða sex ólagsöldur fylgjast að.

Það er önnur sögn að þegar eitt skip hefur farizt í lendingu hvort sem það hefur hitt ólag eða því hefur borizt á af öðrum orsökum þá komi kyrrð á sjóinn stundarkorn á eftir og heitir sú kyrrð dauðalag svo þeim lendist vel sem þá leggja að landi á eftir þegar sjórinn hafi fengið sitt; er það kallað að lenda á dauðalagi þeirra sem drukknað hafa. – Þá eru og nefndir násjóir; sjást þeir stundum þegar á sjó er verið og þykja ævinlega boða skipreika. Násjóir eru annaðhvort þrír, sex eða níu; falla þeir hver á fætur öðrum og eru auðþekktir á litnum því ýmist eru þau rauðleitari (fyrir vestan) eða blárri (fyrir austan) en sjór er vanalega. – Náöldur eru enn kallaðar; sagt er að þær séu tvær í senn og falli önnur frá landi, en önnur að, og þegar þær mætast verður dynkur mikill og heitir það náskellur. Það boðar og skipreika. Þá er nefnt náhljóð í sjó og er það allt annað en heyrist í kirkjugörðum. Vestfirðingar segja að það fylgi násjónum og er það veinhljóð í sjónum, áþekkt dauðaveini deyjandi manns. Náhljóð heyrist oft á landi og boðar manna drukknun eins og hitt, sem áður er talið.