Brennu-Njáls saga/26

Úr Wikiheimild
Brennu-Njáls saga
26. kafli

Ásgrímur hét maður. Hann var Elliða-Grímsson, Ásgrímssonar, Öndóttssonar kráku. Móðir hans hét Jórunn og var Teitsdóttir Ketilbjarnarsonar hins gamla frá Mosfelli. Móðir Teits var Helga dóttir Þórðar skeggja, Hrappssonar, Bjarnarsonar bunu. Móðir Jórunnar var Ólöf dóttir Böðvars hersis Víkinga-Kárasonar. Bróðir Ásgríms Elliða-Grímssonar hét Sigfús. Hans dóttir var Þorgerður móðir Sigfúss, föður Sæmundar hins fróða.

Gaukur Trandilsson var fóstbróðir Ásgríms er fræknastur maður hefir verið og best að sér ger. Þar varð illa með þeim Ásgrími því að Ásgrímur varð banamaður Gauks.

Ásgrímur átti tvo sonu og hét hvortveggji Þórhallur. Þeir voru báðir efnilegir menn. Grímur hét og sonur Ásgríms en Þórhalla dóttir. Hún var kvenna fríðust og kurteisust og vel að sér ger í öllu.

Njáll kom að máli vil Helga son sinn og mælti: „Hugað hefi eg þér kvonfang frændi ef þú vilt að mínu ráði gera.“

„Það vil eg víst,“ segir hann, „því að eg veit að bæði er þú vilt vel enda kannt þú vel eða hvar hefir þú á stofnað?“

Njáll svaraði: „Við skulum biðja dóttur Ásgríms Elliða-Grímssonar því að sá er kostur bestur.“