Brennu-Njáls saga/52
Útlit
Runólfur hét maður sonur Úlfs aurgoða. Hann bjó í Dal fyrir austan Markarfljót. Hann gisti Otkel er hann reið af þingi. Otkell gaf honum uxa alsvartan, níu vetra gamlan. Runólfur þakkaði honum gjöfina og bauð honum heim þá er hann vildi fara og stóð þetta heimboð nokkurt skeið svo að hann fór eigi. Runólfur sendi honum oft menn og minnti á að hann skyldi fara og hét hann jafnan ferðinni. Otkell átti hesta tvo bleikálótta. Þeir voru bestir hestar að reið í héraðinu og svo elskir hvor að öðrum að hvor rann eftir öðrum.
Austmaður var á vist með Otkatli er Auðúlfur hét. Hann lagði hug á Signýju dóttur Otkels. Auðúlfur var mikill maður vexti og styrkur.