Brennu-Njáls saga/65

Úr Wikiheimild
Brennu-Njáls saga
65. kafli

Þetta haust hið sama kom út Valgarður hinn grái og fór heim til Hofs. Þorgeir fór að finna þá Valgarð og Mörð og sagði hver firn voru er Gunnar skyldi hafa óhelgað þá alla er hann hafði vegið. Valgarður kvað það vera mundu ráð Njáls og þó eigi öll upp komin þau sem hann mundi ráða honum. Þorgeir bað þá feðga liðveislu og atgöngu en þeir fóru lengi undan og mæltu til fé mikið að lyktum. Var það í ráðagerðum að Mörður skyldi biðja Þorkötlu dóttur Gissurar hvíta og skyldi Þorgeir þegar ríða vestur um ár með þeim Valgarði og Merði.

Annan dag eftir riðu þeir tólf saman og komu til Mosfells og var þeim þar vel fagnað, voru þar um nóttina. Vekja þeir þá til við Gissur um bónorðið. Lýkur svo með þeim að ráðin skyldu takast og skyldi boð vera á hálfs mánaðar fresti að Mosfelli. Ríða þeir heim. Síðan fjölmenna þeir feðgar mjög til boðsins. Var þar og margt fyrirboðsmanna og fór það vel fram. Fór Þorkatla heim með Merði og var fyrir búi en Valgarður fór utan um sumarið.

Mörður eggjar Þorgeir á um málatilbúnað við Gunnar. Þorgeir fór að finna Önund í Tröllaskógi, biður hann nú búa til vígsmálið Egils bróður síns og sona hans „en eg mun búa til vígsmál bræðra minna og áverkamál mitt og föður míns.“

Önundur kvaðst þess albúinn. Fara þeir þá og lýsa vígunum og kveðja níu vettvangsbúa.

Þessi málatilbúnaður spurðist til Hlíðarenda. Ríður Gunnar þá að finna Njál og segir honum og spurði hvað hann vildi þá láta að gera.

„Nú skalt þú,“ segir Njáll, „stefna vettvangsbúum og nábúum saman og nefna votta fyrir búum og kjósa Kol til veganda að vígi Hjartar bróður þíns því að það er rétt. Síðan skalt þú lýsa víginu á hendur Kol þó að hann sé dauður. Þá skalt þú nefna þér votta og kveðja búa alþingisreiðar að bera um það hvort þeir væru í aðvist og aðsókn þá er Hjörtur var veginn. Nú skalt þú og stefna Þorgeiri um legorðssökina og svo Önundi í Tröllaskógi um sökina Tyrfings.“

Gunnar fór með öllu sem Njáll kenndi ráð til. Þetta þótti mönnum undarlegur málatilbúnaður. Fara nú þessi mál til þings.

Gunnar reið til þings og Njáll og synir hans og Sigfússynir. Gunnar hafði sendan mann mágum sínum að þeir skyldu ríða til þings og fjölmenna mjög og kvað sér þetta mundu vera mjög harðdrægt. Þeir fjölmenntu mjög vestan.

Mörður reið til þings og Runólfur úr Dal og þeir undan Þríhyrningi og Önundur úr Tröllaskógi.