Heimskringla/Ólafs saga helga/213
Útlit
Ólafur konungur var svo búinn að hann hafði hjálm gylltan á höfði en hvítan skjöld og lagður á með gulli kross hinn helgi. Í annarri hendi hafði hann kesju þá er nú stendur í Kristskirkju við altara. Hann var gyrður sverði því er Hneitir var kallað, hið bitrasta sverð og gulli vafiður meðalkaflinn. Hann hafði hringabrynju.
Þess getur Sighvatur skáld:
- Öld vann Ólafr fellda,
- öflgan sigr, hinn digri,
- gekk sóknþorinn sækja
- sinjór fram í brynju.
- En, þeir er austan nenna,
- óx hildr, með gram mildum,
- mart segi eg bert, í bjarta
- blóðröst, Svíar, óðu.