Heimskringla/Ólafs saga helga/42

Úr Wikiheimild

Sveinn jarl sendi menn út í Gaulardal eftir Einari mági sínum. En er Einar kom til jarls þá segir jarl honum allt um skipti þeirra Ólafs konungs og svo það að hann vill liði safna og fara á fund Ólafs konungs og berjast við hann.

Einar svarar svo: „Vér skulum fara ráðum með, halda til njósn hvað Ólafur konungur ætlast fyrir. Látum það eitt til vor spyrja að vér séum kyrrir. Kann þá vera, ef hann spyr eigi liðsafnað vorn, að hann setjist inn að Steinkerum um jólin því að þar er nú vel fyrir búið. En ef hann spyr að vér höfum liðsafnað þá mun hann stefna þegar út úr firði og höfum vér hans þá ekki.“

Svo var gert sem Einar mælti. Fór jarl á veislur upp í Stjóradal til bónda.

Ólafur konungur, þá er hann kom til Steinkera, tók hann upp veisluna og lét bera á skip sín og aflaði til byrðinga og hafði með sér bæði vist og drykk og bjóst í brott sem skyndilegast og hélt út allt til Niðaróss. Þar hafði Ólafur konungur Tryggvason látið efna til kaupstaðar sem fyrr var ritið. En er Eiríkur jarl kom til lands þá efldi hann á Hlöðum þar sem faðir hans hafði höfuðbæ sinn látið vera en hann órækti hús þau er Ólafur hafði látið gera við Nið. Voru þau þá niður fallin sum en sum stóðu og voru heldur óbyggileg.

Ólafur konungur hélt skipum sínum upp í Nið. Lét hann þar þegar búast um í þeim húsum er uppi stóðu en reisa upp þau er niður voru fallin og hafði þar að fjölda manns, lét og þá flytja upp í húsin bæði drykkinn og vistina og ætlaði þar að sitja um jólin. En er það spurði Sveinn jarl og Einar þá gera þeir ráð sín í öðrum stað.