Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Galdrasögur/Kálfur fer að hitta Sæmund fróða

Úr Wikiheimild
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri  (1862) 
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Kálfur fer að hitta Sæmund fróða

Einu sinni vildi Kálfur finna síra Sæmund fróða í Odda og gat um við heimafólk sitt að gaman væri nú að koma Sæmundi á óvart og hann ætlaði að vita um það hvort hann gæti það ekki.

Síðan er ekki getið um ferðir hans fyrr en hann kemur að Odda. Sæmundur heyrir að barið er á dyrum; hann skipar vinnumanni sínum að fara út og vita hver kominn er. Hann gengur út og verður einkis manns var og gengur inn aftur og segir enginn sé úti. Þá er barið aftur og skipar Sæmundur öðrum vinnumanni að ganga til dyra, og gjörir hann það, en hann finnur engan mann úti. Hann gengur kringum allan bæinn, en sér ekki að heldur nokkurn mann og fer við svo búið inn og segir enginn hafi verið úti.

Síðan er barið í þriðja sinni. Þá sprettur Sæmundur upp og segir að sá sem úti sé muni vilja finna sig og gengur út, og sér hann að Kálfur Árnason er kominn og heilsast þeir mjög vinsamlega. Kálfur biður hann að lofa sér að vera, og er það velkomið. Kálfur biður Sæmund um hnappheldu á hest sinn og fer Sæmundur að leita að henni og finnur hana og kemur með hana. Kálfur segir það sé nú skammarlegt að biðja hann að hefta hestinn, en þó ætli hann að biðja hann um það, og segist Sæmundur skuli gjöra það og fer hann til og er hann nú afar lengi. Kálfur þykist undrast hvað hann sé lengi að hefta hestinn og spyr hann hvort hann kunni ekki að hefta hest. Sæmundur segist ekki finna fæturnar á hestinum. Kálfur segir þær séu niðrúr kviðnum á þessum hesti eins og öðrum hestum. Sæmundur segir þær séu ekki til á þessum hesti og ekki finni hann þær. Og nú líður langur tími og er ekki getið um hvort Sæmundur gat nokkurn tíma heft hestinn.

Nú býður Sæmundur Kálfi að koma inn og þiggur hinn það. Sæmundur gengur á undan með ljós í hendi og bíður eftir honum innarlega í bæjardyrunum. Aldrei kemur Kálfur inn og eftir afar langan tíma kemur kona Sæmundar fram og spyr Sæmund að hvaða maður þetta hafi verið, og segir hann henni það. Hún spyr hann að hvort hann hafi ekki boðið honum inn. Hann segist vera búinn að því fyrir lifandis löngu. Hún vill fara út og bjóða honum inn, en Sæmundur vill það ekki og segir hann komi bráðum. Enn líður afar langur tími þangað til Kálfur kemur loks inn mjög móður og biður konu Sæmundar að færa sér mikið að drekka. „Þarftu mikið að drekka?“ sagði Sæmundur. „Það er vísast að fleiri þurfi að drekka en ég áður en kvöldið er úti.“

Síðan er Kálfur leiddur í stofu og er honum færður matur og fenginn hnífur að borða með. En þegar hann fer að borða bítur hnífurinn ekkert. Sæmundur spyr hann að hvort hnífurinn bíti ekki. Kálfur segir það ekki vera. Kona Sæmundar segir hann hafi þó átt að bíta. Sæmundur segir honum að fá sér hann og skuli hann reyna að brýna hann, og fær Kálfur honum hnífinn, og brýnir Sæmundur hann og fær honum aftur og segir að nú skuli hann vara sig á honum því nú haldi hann að hann bíti. Kálfur segist ekki vera svo hræddur við það. Fer nú Kálfur að skera. En þegar hann skar fyrsta bitann skar hnífurinn sundur diskinn og borðið og skar skurð í hné Kálfs. Sæmundur sagði að hann hefði varað hann við að hnífurinn mundi bíta. Kálfur sagði að þetta sár væri ekki til dauða og batt um það.

Þá var venja að lesa borðsálm fyrir og eftir máltíð. Þegar Kálfur var að lesa borðsálminn eftir, þá leið Sæmundur aftur á bak í stólnum rétt eins og dauður og skipar Kálfur strax að dreypa á hann vatni, og hleypur kona Sæmundar eftir vatni og dreypir á mann sinn, og dugar það ekki. Kálfur stendur þá upp og fer að dreypa á hann. Raknar hann þá við og skipar Kálfur honum að drekka vatn, og gjörir Sæmundur það. Þá segir Kálfur: „Ég vissi það að fleiri þurftu að drekka vatn í kvöld en ég þegar ég bað um mikið vatn í kvöld eftir að ég hafði svo lengi verið að finna dyrnar.“

Síðan hættu þeir nú þessum leikjum og fóru nú að bera sig sundur og saman um hvað hver kynni í göldrum, og sagði Kálfur að Sæmundur kynni einasta fram yfir sig Svartaskólafræðin, nl. það sem Sæmundur hefði lært í Svartaskóla.