Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Goðfræðisögur/Missögn af Gissuri á Botnum

Úr Wikiheimild
Fara í flakk Fara í leit
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri  (1862) 
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Missögn af Gissuri á Botnum

Í Búrfelli á Þjórsárdal heitir Tröllkonugröf; á þar að vera grafin Þuríður Arngeirsdóttir er Landnáma getur um að „Þjórsdælir vildu berja grjóti í hel“. Tvennum sögnum fer um hana og systur hennar er öllum ber saman um að hafi átt heimkynni í Næfurholtsfjöllum; því flestar sagnir segja að tröllkonan í Búrfelli (Þuríður) hafi kallaði til systur sinnar í Næfurholtsfjöllum eins og hér segir að framan og beðið hana um pottinn er hún sá manninn ríða, en aðrir segja að tröllkonan í Næfurholtsfjöllum hafi kallað til hinnar og sagt:

„Systir, ljáðu mér pott.“

Tröllkonan í Búrfelli:

„Það er ekki gott.
En hvað á að gjöra við hann?“

Tröllkonan í Næfurholtsfjöllum:

„Sjóða í honum mann.“

Tröllkonan í Búrfelli:

„Hver er hann?“

Tröllkonan í Næfurholtsfjöllum:

„Gissur á Botnum,
Gissur á Lækjarbotnum.“

Þá svaraði enn tröllkonan í Búrfelli: „Ekki færðu hann; hann er kámugur um kjaftinn.“ Maðurinn hafði nýlega verið til altaris og því unnu þær systur honum ekki mein.[1]

  1. Sbr. ’’Smalastúlkuna’’