Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Náttúrusögur/Mál er að mæla

Úr Wikiheimild
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri  (1862) 
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
„Mál er að mæla“

Á nýjársnótt verða margir hlutir undarlegir. Það er eitt að kýr mæla þá[1] mannamáli og tala saman. – Einu sinni lá maður úti í fjósi á nýjársnótt til þess að heyra hvað kýrnar töluðu. Hann heyrir þá að ein kýrin segir: „Mál er að mæla (aðrir: mæra).“ Þá segir önnur: „Maður er í fjósi.“ „Hann skulum vér æra,“ segir þriðja kýrin. „Áður en kemur ljósið,“ segir hin fjórða. Frá þessu gat maðurinn sagt morguninn eftir, en ekki fleiru því kýrnar höfðu ært hann.

  1. Sumir segja að, kýr tali á Jónsmessunótt og enn aðrir á þrettándanótt eins og næsta saga á eftir sýnir sem sýnist vera skeytt saman af þessari sögu og af einni kúaþulunni.