Heimskringla/Ólafs saga Tryggvasonar/61

Úr Wikiheimild
Heimskringla - Ólafs saga Tryggvasonar höfundur Snorri Sturluson
61. Tal þeirra Ólafs konungs og Sigríðar stórráðu

Snemma um vorið fór Ólafur konungur austur til Konungahellu til stefnu móti Sigríði drottningu. En er þau fundust þá töluðu þau það mál er rætt hafði verið um veturinn, að þau mundu gera samgang sinn, og fór það mál allt líklega. Þá mælti Ólafur konungur að Sigríður skyldi taka skírn og rétta trú.

Hún segir svo: „Ekki mun eg ganga af trú þeirri er eg hefi fyrr haft og frændur mínir fyrir mér. Mun eg og ekki að því telja þótt þú trúir á þann guð er þér líkar.“

Þá varð Ólafur konungur reiður mjög og mælti bráðlega: „Hví mun eg vilja eiga þig hundheiðna?“ og laust í andlit henni með glófa sínum er hann hélt á.

Stóð hann upp síðan og bæði þau.

Þá mælti Sigríður: „Þetta mætti verða vel þinn bani.“

Síðan skildu þau. Fór konungur norður í Víkina en drottning austur í Svíaveldi.