Heimskringla/Haralds saga Sigurðarsonar/42
Útlit
Haraldur konungur var ríklundaður og óx það sem hann festist í landinu og kom svo að flestum mönnum dugði illa að mæla í móti honum eða draga fram annað mál en hann vildi vera láta.
Svo segir Þjóðólfur skáld:
- Gegn skuli her sem hugnar
- hjaldrvitjaðar sitja
- dólgstæranda dýrum
- drottinvandr og standa.
- Lýtr fólkstara feiti,
- fátt er til nema játta
- þat, sem þá vill gotnum,
- þjóð öll, konungr bjóða.