Heimskringla/Ynglinga saga/17
Útlit
Dyggvi hét sonur hans er þar næst réð löndum og er frá honum ekki sagt annað en hann varð sóttdauður.
Svo segir Þjóðólfur:
- Kveðkat eg dul,
- nema Dyggva hrör
- glitnis Gná
- að gamni hefr,
- því að jódís
- úlfs og Narfa
- konungmann
- kjósa skyldi,
- og allvald
- Yngva þjóðar
- Loka mær
- um leikinn hefr.
Móðir Dyggva var Drótt, dóttir Danps konungs, sonar Rígs er fyrstur var konungur kallaður á danska tungu. Hans áttmenn höfðu ávallt síðan konungsnafn fyrir hið æðsta tignarnafn. Dyggvi var fyrst konungur kallaður sinna ættmanna en áður voru þeir drottnar kallaðir en konur þeirra drottningar en drótt hirðsveitin. En Yngvi eða Ynguni var kallaður hver þeirra ættmanna alla ævi en Ynglingar allir saman.
Drótt drottning var systir Dans konungs hins mikilláta er Danmörk er við kennd.