Búnaðarbálkur/Y
Útlit
- Y
- Nokkurra annara villigrasa lækningar og dygðir. Dýrindis pípu-tóbak. Hjónarætr. Uppskorin ylmgrös blómgast inni í húsum fyrir utan rætr.
- 79.
- Maðran örþreyttum lèttir lúa,
- ljá krapta veðra-berin rauð;
- melir og drekar, (muntu trúa?)
- mèr færa hveiti' og sætabrauð:
- fjöl-dygdug jázt um jöklastöð,
- Jakobs-fífill og remmu-blöð.
- 80.
- Enskir kaupa fyrir dýra dóma
- dökkvunar-blöð í tóbaks reyk;
- vèlantsrót garnir gerir tómar;
- geitlu vill þjóðin fóta-veik;
- græðisúran er sárum holl;
- svæfla bilaðan læknar koll.
- 81.
- Ofsvefni hrindir hrafna-klukka;
- hrindir svefnleysi fjólu-lauf,
- mergruna skemdum skeggið bukka;
- skírist af augnfró sjónin dauf;
- við eitr, pest og orma-nag
- á sævar-hvönn og vind og slag.
- 82.
- Þetta' er og meira á mínu landi,
- mörg er ótalin dygðin fín
- í þeirra góðu grasa blandi;
- gestunum skeinki' eg bjarkarvín
- og sterka berja virt og völ
- vænnra blóm-laga' í helgar-öl.
- 83.
- Hjónagrösunum gleymi' eg aldri,
- svo góðan ylm þau senda mér,
- frjósemi verka' á frygðar-aldri,
- frævast óbyrjur þar fyrir;
- ein rotin sökk og önnur flaut,
- úr faðmlögunum tekin braut.
- 84.
- A fagri mörk gekk mèr í lyndi,
- mettuðu blómstrin sjón og þef;
- en svo eg missi' ei urtar yndis,
- inni hjá mèr eg nokkrar hef;
- þær ylm í bænum breiða' ámót,
- blómgast samt fyrir utan rót.